Fréttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar
Knattspyrna | 2. mars 2022

Minningarmót Ragnars Margeirssonar

Hið árlega minningarmót um Keflvíkinginn Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram verður haldið í Reykjaneshöllinni laugardaginn 19. mars.
Mótið er hefbundið knattspyrnumót eldri drengja með 6 leikmenn í liði á kvart velli. Skipt verður í riðla eftir aldri þátttökuliða, n.tt. 30 ára+ og 50 ára+.
Hefð hefur skapast fyrir því hjá vinum Ragga Margeirs að styrkja góð málefni tengd knattspyrnu með pening sem safnast af þáttöku í mótinu.
Þetta verður í sextánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar sem lést langt fyrir aldur fram.
Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni laugardaginn 19.mars og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga góða stund saman.
Mótið hefst kl. 16:30 og lýkur um kl. 18:30.
- Leikið verður á 4 litlum völlum (50 x 32).
- Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður)
- Aldurstakmark er 30 ár
- Hámarksfjöldi liða í mótið eru 16 lið
- Þátttökugjald er að lágmarki 20.000 kr. á lið
- Staðfestingargjald (5000 kr. - sem dregst frá þátttökugjaldi) skal greitt eigi síðar en 11. mars.
- Þátttökugjald leggist inn á reikning: 0133-26-005194, kt. 701221-1250
Þátttökutilkynningar sendist á minningarmot@gmail.com
Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar á Paddys. Lokahófið hefst um kl 19 og lýkur formlega kl 22 en fjörið heldur áfram fram á rauða nótt.
Þeir sem vilja styrkja málefnið geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 0133-26-005194, kt. 701221-1250.
Með fótboltakveðju
Vinir Ragga Margeirs