Fréttir

Gunnar Magnús lætur af störfum
Knattspyrna | 10. október 2022

Gunnar Magnús lætur af störfum

Gunnar Magnús Jónsson lætur af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Keflavík
Stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur hefur ákveðið að virkja endurskoðunarákvæði í samningi deildarinnar við Gunnar Magnús Jónsson um að hann láti af störfum sem þjálfari kvennaliðsins.
Gunnar Magnús hefur þjálfað meistaraflokk kvenna frá árinu 2016 og skilur við liðið í Bestu deildinni þar sem liðið hefur spilað tvö síðustu ár. Gunnar hefur unnið ötullega að framgangi og uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar í Keflavík síðustu ár enda sannur Keflvíkingur sem með ástríðu sinni og krafti hefur átt risastóran þátt í því að kvennaknattspyrnan í Keflavík hefur komist á þann stað sem hún er í dag.
Gunnar hefur náð eftirtektarverðum árangri með liðið síðustu ár og eru honum færðar bestu þakkir deildarinnar fyrir vel unnin störf.