Fréttir

Knattspyrna | 17. júlí 2003

1. deildin hálfnuð; litið til baka

Með leiknum gegn Víkingum á síðustu viku lauk 9. umferð deildarkeppninnar og er hún því hálfnuð.  Við það tækifæri er sjálfsagt að líta til baka og skoða hvernig gekk í fyrri umferð mótsins.  Í könnuninni sem hefur staðið yfir á síðunni síðustu daga er spurt hvað hafi verið besta liðið sem Keflavík hafi leikið gegn í deildinni.  Ekki kemur á óvart að eins og staðan er nú eru það liðin sem tóku stig af okkur, Víkingur og Þór, sem skera sig nokkuð úr.  Eins og staðan í deildinni er núna bendir margt til þess að þessi þrjú lið muni berjast um tvö efstu sætin í haust.

Til að skoða hvernig liðið og leikmenn hafa verið að standa sig það sem af er sumri leitaði heimasíðan til nokkurra stuðningsmanna Keflavíkurliðsins sem eiga það sameiginlegt að hafa fylgst vel með liðinu í sumar og vera auk þess þannig gerðir að þurfa að hafa skoðun á öllum sköpuðum hlutum.  Þessir spekingar samþykktu að líta yfir gengi liðsins og gefa liðinu og einstökum leikmönnum einkunn fyrir frammistöðuna í sumar og nefna hvað hefur verið jákvætt og neikvætt í leiks liðsins.  Ætlunin er að taka athugasemdir þessara valinkunnu sérfræðinga síðan saman og birta hér á heimasíðunni innan skamms.


Árangur Keflavíkur

Heima 

Úti 

Alls 

Leikir

5

4

Sigrar - Jafntefli - Töp 

4-0-1

3-1-0

7-1-1

Markatala

15-8

10-2

25-10

Mörk per leik

3.0 - 1.6 

2.5 - 0.5

2.7 - 1.1 


Það er fróðlegt að skoða hvenær liðið er að skora og hvenær mörk andstæðinganna koma í leikjunum.  Eins og sjá má á töflunni til hægri koma mörg mörk Keflavíkurliðsins undir lok leikjanna og af mörkunum 25 sem liðið hefur skorað komu 9 í fyrri hálfleik en 16 í þeim seinni.  Mörkin 10 sem liðið er búið að fá á sig koma líka mörg undir lok leikjanna eða í byrjun og sést í töflunni til hægri.

 
Skoruð mörk: 25


Mörk fengin á sig: 10