10-11 mót 5. flokks um helgina
Knattspyrnudeildir Keflavíkur og Njarðvíkur halda umfangsmikið knattspyrnumót í Reykjaneshöll dagana 20. – 21. nóvember í samvinnu við 10 – 11.
Þetta mót er nú haldið annað árið í röð og munu 11 íþróttafélög af suður- og suðvesturlandi senda 5. flokks lið drengja til mótsins. Þátttakendur verða vel á fjórða hundrað drengja á aldrinum 10 og 11 ára og munu flestir þeirra gista í Holtaskóla. Einnig má reikna með að fjöldi foreldra muni koma og fylgjast með börnum sínum keppa í Reykjaneshöllinni um helgina. Segja aðstandendur keppenda að ánægjulegt sé að íþróttahreyfingin geti tekið virkan þátt í að fá fólk til þess að sækja Reykjanesbæ heim. Óhætt er að gera ráð fyrir að fyrirtæki og þjónustuaðilar á svæðinu muni njóta góðs af þessum heimsóknum. Fjöldi sjálboðaliða mun leggja mótshöldurum lið til þess að gera mótið sem veglegast. Mótið hefst kl. 10:00 á laugardagsmorgun og lýkur með verðlaunaafhendingu um kl. 14:00 á sunnudaginn.
Þátttakendur munu gera ýmislegt annað en að leika knattspyrnu, m.a. skoða flugvélar hjá Icelandair, fara í bíó og í sund, halda pizzuveislu svo eitthvað sé nefnt. Bæjarbúar eru hvattir til þess að líta við í Reykjaneshöllinni og fylgjast með sprækum og kátum strákum í fótbolta um næstu helgi.
Heimasíða mótsins er á slóðinni http//www.irb.is/1011.