Fréttir

2. flokkur B í úrslitaleik
Knattspyrna | 26. september 2015

2. flokkur B í úrslitaleik

Strákarnir í 2. flokki Keflavíkur/Njarðvíkur leika til úrslita á Íslandsmóti B-liða gegn KA.  Úrslitaleikurinn verður á Blönduósi á sunnudaginn kl. 14:00. 

Okkar strákar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með sigri gegn Fjölni í miklum markaleik í undanúrslitaleiknum.  Þar urðu lokatölur 6-4 en Óðinn Jóhannsson og Guðmundur Juanito Ólafsson gerðu báðir tvö mörk í leiknum og þeir Jón Ásgeirsson og Ari Steinn Guðmundsson eitt hvor.  KA-menn sigruðu Stjörnuna/Skínanda 2-0 í hinum undanúrslitaleiknum.

Við óskum strákunum góðs gengis í úrslitaleiknum.

Myndirnar með fréttinni eru frá undanúrslitaleiknum gegn Fjölni en þær eru fengnar af Facebook-síðu flokksins.