Knattspyrna | 10. júní 2005 2. flokkur tapar heima 2. flokkur karla tapaði í gærkvöldi fyrir Stjörnunni 0-3 í Bikarkeppni KSÍ. Okkar menn léku ekki vel og uppskáru samkvæmt því. Næsti leikur verður á þriðjudag á Iðavöllum kl. 20:00 en þá kemur Þróttur Reykjavík í heimsókn.