2. flokkur vann B-deildina
2. flokkur karla vann B-deild annars flokks liða með öruggum sigri á Fjölni á aðalleikvangi Keflavíkur síðdegis á sunnudag. Leikurinn var í jafnvægi lengst af en Brynjar Þór skoraði 15 mínútum fyrir leikslok. Skömmu síðar bætti Brynjar við öðru marki og Gísli Örn kórónaði góða frammistöðu liðsins og lokastaðan var því 3-0. Sigur í B-deild tryggður og sigurinn er ekki síst að þakka frábæru starfi Einars Aðalbjörnssonar sem af einskærum áhuga og dugnaði hefur verið maðurinn á bak við þessa velgengni ásamt þjálfara liðsins, Kristni Guðbrandssyni. Strákarnir gátu því ekki þakkað Einari og Kristni samstarfið á betri hátt en að sigra deildina eins og Einar lagði upp með í vetur. Umgjörð liðsins hefur verið frábær, upphitunar- og ferðagallar voru keyptir á liðið í vor og síðan fóru drengirnir í viku æfingaferð til Spánar um verslunarmannahelgina. Til hamingju 2. flokkur og aðstandendur hans. ási
Myndir: Jón Örvar Arason