Fréttir

Knattspyrna | 23. júlí 2005

3. flokkur á USA Cup

3. flokkur pilta er nú staddur í Minneapolis þar sem liðið tekur þátt í Schwan´s USA Cup.  Það er risastórt knattspyrnumót með um 30.000 þátttakendum.  Hér að neðan má sjá úrslitin í leikjum Keflavíkur og nokkrar myndir.  Annars hefur allt gengið að óskum í ferðinni og piltarnir verið til fyrirmyndar, innan vallar sem utan.  Þeim sem vilja sjá meira um ferðina er bent á bloggsíðu yngri flokka pilta.  Gunnar Magnús, þjálfari piltanna, hefur sett skemmtilega pistla inn á þá síðu þar sem nánar er sagt frá mótinu, leikjum Keflvíkinga og því sem piltarnir hafa tekið sér fyrir hendur.  Einnig er hægt að sjá meira um mótið á heimasíðu þess.

Úrslit leikja:
Keflavík - KCFC Gunners: 1-2 (Viktor Guðnason)
Keflavík - Milwaukee Sport Club: 0-3
Keflavík - Blaine Wildcats: 4-0 (Viktor Guðnason 2, Helgi Eggertsson 2)
Keflavík - Southeast SC: 2-0 (Davíð Már Gunnarsson, Pétur Elíasson)
Keflavík - Hudson Raiders: 1-2 (Pétur Elíasson)