3. flokkur kvenna áfram í bikarnum
3. flokkur kvenna lék gegn Aftureldingu í bikarkeppninni á Tungubökkum í gærkvöldi og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri. Stelpurnar byrjuðu leikinn vel sem oftar og komust yfir á 9. mínútu með marki frá Evu. Eftir markið var allur vindur úr stelpunum og Afturelding komst meira inn í leikinn, staðráðnar í að vinna. Að sama skapi vorum við í bölvuðu tjóni alls staðar á vellinum. Það kom að því að heimastúlkur jöfnuðu leikinn, það gerðist rétt fyrir leikhlé eftir að Anna markvörður hafði hreinsað frá marki. Boltinn barst út fyrir teig þar sem hann barst til heimamanna og fékk leikmaðurinn að taka boltann óáreittur og skjóta á markið og inn fór boltinn. Staðan 1-1 í leikhléi.
Mun skárra var að sjá til okkar í seinni hálfleik. Stelpurnar fóru að berjast meira og láta finna aðeins meira fyrir sér. Liðin voru þó ekki að skapa sér færi að ráði, minnstu munaði þó að heimastúlkur kæmust yfir er þær áttu skot í stöng. Þegar um tíu mínutur voru til leiksloka náði Helena Rós að koma okkur yfir af mikilli harðfylgni eftir klafs inn í teig. Það sem eftir lifði leiks einkenndist af baráttu á miðsvæðinu og að halda fengnum hlut. Þetta var afspyrnulélegur leikur af okkar hálfu og getum við gert miklu betur. En eins og oft gerist í bikarleikjum þegar andstæðingurinn á að heita lakari verður knattspyrnan lítil sem engin en strögglið meira. En þetta hafðist og eru stelpurnar komnar í átta liða úrslit.
3. flokkur, Bikarkeppni
Afturelding - Keflavík: 1-2 (Eva Kristinsdóttir, Helena Rós Þórólfsdóttir)
Keflavík: Anna Rún, Ingibjörg, Rebekka, Helga, Bergþóra, Helena, Birna, Eva (F), Sonja, Andrea, Karen S., Hildur, Elísabet, Jóna, Kristín, Karen H.
Stelpurnar í 3. flokki eru komnar í 8 liða úrslit bikarkeppninnar.