3. flokkur kvenna byrjar með sigri
Í dag lék 3. flokkur kvenna fyrsta leik sinn á Íslandsmótinu þegar þær tóku á móti liði HK. Leikurinn var ekki nema átta múnútna gamall þegar Birna Marín kom Keflavík yfir eftir að hafa fylgt vel eftir fyrirgjöf frá Helenu Rós. Við markið virtist eins og allt loft væri úr heimastúlkum og voru þær í bölvuðu basli á miðsvæðinu og í varnarleiknum. Á fimmtán mínútna kafla skoruðu gestirnir þrjú mörk og áttu það fyllilega skilið því við vorum að leika illa allan fyrri hálfleikinn. Fimm mínútum fyrir hlé vænkaðist þó hagur okkar þegar Birna Marín skoraði beint úr hornspyrnu. Stelpurnar mættu þó mjög ákveðnar til leiks eftir hlé og náði Karen Sævars að jafna á 42. mínútu. Eftir það var nokkurt jafnræði með liðunum þó að við værum meira með boltann. Á 58. mínútu áttum við mjög góða sókn sem endaði með því að Helena Rós fékk góða sendingu frá Evu og afgreiddi knöttinn í mark HK með vinstri. Heimastúlkur komnar yfir 4-3, þannig endaði leikurinn og fyrsti sigurinn í A-riðli í höfn. Oft hafa stelpurnar spilað betur en þær gerðu í dag. Þessi leikur þeirra sýnir þó góðan karakter, að spila illa en ná þó að sigra.
Keflavík - HK: 4-3 (Birna Marín 8., 35., Karen Sævars 42., Helena Rós 58.)
Keflavík: Anna Rún, Ingibjörg, Bergþóra, Helga, Rebekka (Justyna 52), Eva, Sonja (Jóna 79), Birna Marín, Helena Rós, Karen Sævars, Andrea (Hildur 72), Sigrún Kristín.
Leikskýrsla á www.ksi.is