Fréttir

Knattspyrna | 19. ágúst 2007

5. flokkur karla í úrslit Íslandsmótsins

5. flokkur Keflavíkur lauk keppni í riðlakeppni (B – riðli) Íslandsmótsins s.l. þriðjudag. Piltarnir í A og B liðum léku gegn grönnum sínum í Grindavík en C og D liðin léku gegn Fjölni 2. Piltarnir hafa staðið sig mjög vel í sumar og ber þar hæst gengi A – liðsins en þeir hafa leikið 9 leiki í sumar; unnið 8 leiki og gert eitt jafntefli sem skilar þeim í efsta sæti riðilsins í keppni A – liða.

A og B liðin telja saman í Íslandsmótinu þ.e. sigur í A – liðs leik gefur 3 stig, sigur í B – liðs leik gefur 2 stig og jafntefli gefur alltaf eitt stig.  Keflavíkurpiltarnir enduðu í 2. sæti í sameiginlegri keppni  A og B liða sem er frábær árangur hjá piltunum.  Með þessu tryggðu piltarnir sér þátttökurétt í úrslitakeppni Íslandsmótsins ásamt því að færast upp í A – riðil að ári.  Úrslitakeppnin fer fram dagana 24. – 26. ágúst en ekki er búið að ákveða hvar keppnin verður haldin þegar þetta er skrifað.  Við sendum piltunum hamingjuóskir með árangurinn í sumar og ósk um gott gengi í úrslitakeppninni.

C og D liðin náðu ekki í úrslitakeppnina að þessu sinni en stóðu sig engu að síður vel á Íslandsmótinu í sumar.

 

Úrslit leikjanna á þriðjudag voru sem hér segir:

 

A – lið:

Keflavík – Grindavík 2 – 1
Mörk Keflavíkur: Elías Már Ómarsson og Arnþór Guðjónsson.

Leikskýrsla.

Lokstaða A – liða.  Keflavík á TOPPNUM !!
A - lið Keflavíkur er eina lið Keflavíkur, ásamt Keflavík eldri, sem ekki hefur tapað leik á Íslandsmótinu í ár :-)

 

B – lið:

Keflavík – Grindavík 3 – 2

Mörk Keflavíkur: Birkir Freyr Birkisson, Einar Þór Kjartansson og Brynjar Freyr Garðarsson.

Leikskýrsla.

Lokstaða B – liða.

 

C – lið:

Keflavík – Fjölnir  1 – 8

Mark Keflavíkur:  Friðrik Daði Bjarnason

Leikskýrsla.

Lokstaða C – liða.

 

D – lið:

Keflavík – Fjölnir  0 - 6

Leikskýrsla.

Lokstaða D – liða


 


Arnþór Guðjónsson hefur spilað frábærlega í vörn A - liðsins í sumar. 
Arnþór brá sér í sóknina gegn Grindavík og gerði sigurmark leiksins.