8. flokks æfingar að hefjast
Nú eru knatttspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný, á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2004 og 2005.
Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Boltaæfingar, leikir og hreyfiþroskaæfingar verða í fyrirrúmi.
Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar.
- Æfingatími: Þriðjudagar í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
- Hópur 1: kl. 17:30 - 18:15
- Hópur 2: kl. 18:15 – 19:00
- Æfingatímabil: Fyrsta æfing 29. sept, síðasta æfing 8. des.
- Innritun: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn barns og kennitölu ásamt nafni og gsm foreldra. Einnig tilgreina hvort þið viljið vera í hóp 1 eða hóp 2. Þið fáið svo til baka staðfestingu á skráningu.
- Gjald: 5000 kr.
Þjálfari: Gunnar Magnús Jónsson
gmjonsson@simnet.is
S: 899-7158