8. flokks æfingar að hefjast
Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast mánudaginn 4. júní.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2006, 2007 og 2008.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15
Æfingastaður: Æfingasvæðið að Iðavöllum 7.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á 2 námskeið.
- Námskeið 1: 4. júní – 26. júní (11 æfingar)
- Námskeið 2: 2. júlí – 24. júlí (11 æfingar)
Verð: 6000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 4000 kr.
Systkinaafsláttur er veittur; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
Þjálfari: Ragnar Steinarsson
Allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is