Fréttir

8. flokks æfingar að hefjast
Knattspyrna | 18. september 2012

8. flokks æfingar að hefjast

 

Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2007 og 2008. Í ár, eins og í fyrra, verða tvær æfingar á viku í boði, annars vegar í Reykjaneshöll og hins vegar í íþróttahúsinu við Sunnubraut.


Æfing í íþróttahúsinu við Sunnubraut (æfing 1): 
Þessar æfingar eru eins konar "íþróttaskóli" með áherslu á knattspyrnu. Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Boltaæfingar, leikir og þrautabrautir verða í fyrirrúmi. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar.

- Æfingatími: Þriðjudagar, íþróttahúsinu við Sunnubraut, kl. 17:25 - 18:20
- Æfingatímabil: Fyrsta æfing 25. september, síðasta æfing 4. desember.


Æfing í Reykjaneshöll (æfing 2):
Á þessum æfingum verður knattspyrnan í fyrirrúmi. Tækniæfingar með bolta, leikir og mikið spil.
Þessar æfingar eru sérstaklega ætlaðar fyrir börn sem eru með mikinn fótboltaáhuga.

- Æfingatími: Föstudagar í Reykjaneshöll, kl. 17:30 - 18:10
- Æfingatímabil: Fyrsta æfing föstudaginn 5. okt, síðasta æfing 7. des.
Þar sem verið er að skipta um gras í Reykjaneshöllinni verður ekki hægt að byrja fyrr en 5. okt. Áætluð verklok eru 4. okt. en gæti hugsanlega dregist.


Stefnt verður á að halda lítið mót í Reykjaneshöll á tímabilinu, þ.e. ef næg þátttaka liða fæst.


Innritun

Sendið skráningu á neðangreint netfang með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn barns:
Kennitala barns:
Nafn foreldra/forráðamanna:
GSM foreldra/forráðamanna:
Skrá barnið á:
___ Æfingu 1 (Sunnubraut)          
___ Æfingu 2  (Reykjaneshöll)       
___ Æfingu 1 og 2 (Sunnubraut og Reykjaneshöll)

Öllum skráningum verður svarað með staðfestingu í tölvupósti.
Athugið að skráning í 8. flokk er EKKI í NÓRA kerfinu.


Gjald
6000 kr. ef valið er að æfa einu sinni í viku.
10.000 kr. ef valið er að æfa tvisvar sinnum í viku.

Systkinaafsláttur:
Barn 2 greiðir hálft gjald, frítt fyrir barn 3. 

Þjálfari:
Ragnar Steinarsson, íþróttafræðinemi
ásamt aðstoðarmönnum

Allar nánari upplýsingar má nálgast á netfanginu:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is