Fréttir

8. flokks æfingar að hefjast
Knattspyrna | 24. janúar 2013

8. flokks æfingar að hefjast

 

Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2007 og 2008. Það verða tvær æfingar á viku í boði, annars vegar í Reykjaneshöll og hins vegar í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Iðkendur geta valið hvort þeir mæti á báðar æfingarnar eða eingöngu eina æfingu.


Æfing í íþróttahúsinu við Sunnubraut (æfing 1): 
Þrátt fyrir að um fótboltaæfingar sá að ræða þá er mikil áhersla á leiki, boltaæfingar, þrautabrautir og fjölbreytta hreyfingu. Æfingarnar eru eins konar "íþróttaskóli" þar sem knattspyrnan er höfð að leiðarljósi. Áhersla er lögð á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar. Æfingin er hugsuð sem skemmtileg fjölskyldustund og er foreldrum velkomið að vera nærri barni sínu ef barninu líður betur við slíkar aðstæður.

ÆfingatímiÞriðjudagar, íþróttahúsinu við Sunnubraut, kl. 17:25 - 18:20
ÆfingatímabilFyrsta æfing 29. janúar, síðasta æfing 23. apríl (frí tvo þriðjudaga í kringum páskana).


Æfing í Reykjaneshöll (æfing 2):
Á þessum æfingum verður knattspyrnan í fyrirrúmi. Tækniæfingar með bolta, leikir og mikið spil.
Þessar æfingar eru sérstaklega ætlaðar fyrir börn sem eru með mikinn fótboltaáhuga.

Æfingatími: Föstudagar í Reykjaneshöll, kl. 17:15 - 18:00
Æfingatímabil: Fyrsta æfing föstudaginn 1. feb, síðasta æfing 26. apríl (frí tvo föstudaga í kringum páskana).


 

Innritun

Sendið skráningu á neðangreint netfang með eftirfarandi upplýsingum:

Nafn barns:
Kennitala barns:
Nafn foreldra/forráðamanna:
GSM foreldra/forráðamanna:
Skrá barnið á:
___ Æfingu 1 (Sunnubraut)          
___ Æfingu 2  (Reykjaneshöll)       
___ Æfingu 1 og 2 (Sunnubraut og Reykjaneshöll)

Öllum skráningum verður svarað með staðfestingu í tölvupósti.
Athugið að skráning í 8. flokki er EKKI í NÓRA kerfinu.


Gjald
6000 kr. ef valið er að æfa einu sinni í viku.
10.000 kr. ef valið er að æfa tvisvar sinnum í viku.

Systkinaafsláttur:
Barn 2 greiðir hálft gjald, frítt fyrir barn 3. 
Afsláttur á einungis við innan 8. flokks

Allar nánari upplýsingar má nálgast á netfanginu:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá starfi 8. flokks fyrir áramót.