Fréttir

8. flokks æfingar að hefjast
Knattspyrna | 23. maí 2013

8. flokks æfingar að hefjast

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast mánudaginn 3. júní.

Skráning:  Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns.
Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2007, 2008 og 2009.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15

Æfingastaður:  Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.

Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á 2 námskeið.

  • Námskeið 1:  3. júní – 27. júní (11 æfingar)
  • Námskeið 2:  2. júlí – 25. júlí (11 æfingar)

Verð: 6000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 4000 kr.

Systkinaafsláttur er veittur; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
 

Allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is