8. flokkur: Námskeið 2 hefst á mánudaginn
Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur (námskeið 2) hefjast mánudaginn 7. júlí.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2008, 2009 og 2010.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15
Æfingastaður: Nýja æfingasvæðið aftan við Reykjaneshöll.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.
Æfingatímabil:
Námskeið 2: 7. júlí - 29. júlí (11 æfingar)
Verð: 7500 kr. fyrir námskeiðið. Ef fyrra námskeið var sótt, er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 5500 kr.
Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
- Farið verður á Arionbankamót Víkings helgina 16. - 17. ágúst (annar hvor dagurinn hjá 8. flokk) fyrir þá sem áhuga hafa. Stórkostlegt mót sem flokkurinn fór á sumarið 2013
Þjálfarar:
Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur
Ragnar Steinarsson, íþróttafræðingur
Arnþór Ingi Guðjónsson
ásamt aðstoð frá unglingum úr vinnuskólanum
Allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is