Fréttir

8. flokkur: Námskeið 2 hefst á þriðjudaginn
Knattspyrna | 1. júlí 2013

8. flokkur: Námskeið 2 hefst á þriðjudaginn

 

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur (námskeið 2) hefjast þriðjudaginn 2. júlí.

Skráning:  Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2007, 2008 og 2009.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:15 – 17:15

Æfingastaður:  Nýja æfingasvæðið aftan við Reykjaneshöll.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Æfingatímabil:

  • Námskeið 2:  2. júlí - 25. júlí (11 æfingar)

Verð: 6000 kr. fyrir námskeiðið. Ef fyrra námskeið var sótt, er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 4000 kr.
Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is