Á leið heim
Jæja, þá er þessari frábæru æfingaferð lokið hjá okkur Keflvíkingum hér á Oliva Nova. Það verður lagt í hann kl. 12:30 að staðartíma og flogið heim kl. 16:00. Í gær voru tvær góðar æfingar og vel tekið á því. Aðstaðan hér er alveg frábær, hótelið og maturinn góður og frábært æfingasvæði. Í ferðinni voru ellefu æfingar og að auki spilaður einn leikur. Strákarnir hafa verið frábærir, æft vel og í þokkabót sloppið við meiðsli hér í ferðinni. Þjálfarar, liðsstjórn og fararstjórar þakka strákunum fyrir frábæra ferð sem heppnaðist mjög vel.
Kveðja,
Jón Örvar