Fréttir

Knattspyrna | 4. ágúst 2011

Actavis gefur miða á FH-leikinn

Á sunnudaginn heimsækjum við FH í Kaplakrikann í 14. umferð Pepsi-deildarinnar.  Actavis gefur miða á heimaleiki FH en fyrirtækið hefur lengi styrkt Knattspyrnudeild FH.  Fyrirtækið gefur 25 miða á leik FH og Keflavíkur og er stuðningsmönnum Keflavíkur velkomið að freista þess að ná sér í miða en það er gert með því að skrá sig á vef Actavis.  Vinningshafar fá send skilaboð í tölvupósti og nöfn þeirra verða birt á Actavis.is.