Fréttir

Knattspyrna | 21. apríl 2004

Aðalfundur Knattspyrnudómarafélags Suðurnesja

Aðalfundur Knattspyrnudómarafélags Suðurnesja fer fram í K-húsinu Hringbraut 108 í Keflavík mánudaginn 26. apríl og hefst kl. 20:00.  Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og auk þess verður valinn dómari ársins.  Félagið var endurvakið í fyrra eftir að starfsemi þess hafði legið niðri í nokkur ár.  Formaður KDS er Jóhann Gunnarsson.  Knattspyrnudómarar á Suðurnesjum eru hvattir til að fjölmenna á fundinn, þiggja léttar veitingar og taka þátt í að móta starf félagsins.

Heimasíða Knattspyrnudómarafélags Suðurnesja