Aðalfundur Sportmanna 2007
Kæru Sportmenn.
Nú er nýtt knattspyrnutímabil hafið og því við hæfi að blása í lúðra og boða aðalfund stuðningshópsins okkar. Aðalfundur Sportmanna 2007 verður haldinn í félagsheimili Keflavíkur Hringbraut 108 (gamla íþróttavallarhúsið) mánudaginn 7. maí og hefst stundvíslega kl. 20:00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Rúnar formaður og Kristján þjálfari verða gestir fundarins.
Hvetjum til góðrar mætingar.
Stjórnin