Fréttir

Knattspyrna | 31. mars 2006

Aðalfundur Sportmanna á laugardag

Aðalfundur SPORTMANNA verður haldinn í vallarhúsinu við Hringbraut laugardaginn 1. apríl n.k. og verður settur kl. 10.00.  Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf en auk þess mun þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu, Kristján Guðmundsson, mæta til að fræða fundarmenn um stöðu og framtíð knattspyrnumála hjá Íþrótta- og ungmennafélagi Keflavíkur að loknum aðalfundarstörfum.

Kaffi og meðlæti.

Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.


Frá stofnfundinum í fyrra.
(Mynd: Jón Örvar Arason)