Fréttir

Knattspyrna | 29. janúar 2004

Æfingaleikur gegn Víði

Keflavík lék æfingaleik gegn Víði í Höllinni í gær.  Leikurinn endaði 5-0; Helgi Gunnarsson setti tvö mörk í leiknum og Hörður Sveinsson, Hólmar Örn Rúnarsson og Jónas Guðni Sævarsson eitt stykki hver.  Þýski markmaðurinn Lutz Pfannenstiel lék seinni hálfleikinn en lítið reyndi á hann að þessu sinni.  Hægt verður að sjá meira til hans og Keflavíkurliðsins á Iceland Express Cup um helgina.