Æfingaleikur hjá 3. flokki
3. flokkur kvenna lék á laugardag æfingaleik gegn Val í Reykjaneshöll. Spilað var í 3x30 mín. Í fyrsta leikhluta var eins og okkar stelpur áttuðu sig ekki á að það var leikur í gangi. Gestrisnin var svo mikil að við gáfum Valsstelpum tvö ansi ódýr mörk og vorum alls ekki að láta finna fyrir okkur eins og gestirnir voru að gera. Staðan eftir fyrsta leikhluta 0-2
Í öðrum leikhluta fór þetta að lagast og við sóttum meira en við höfðum gert. Samt vorum við ekki að taka fast á andstæðingnum og vorum að hnoðast upp miðjuna þar sem að þær voru sterkastar. Lokastaðan í þessum leikhluta 0-0.
Það var allt annað að sjá til liðsins í þriðja leikhlutanum, baráttan kom loksins og við fórum að nýta kantana meira og skapa fullt af færum. Fljótlega kom loks mark þegar Karen fékk stungusendingu og læddi boltanum í vinstra hornið. Stuttu seinna fengum við hornspyrnu sem Eva tók og Helena Rós hamraði inn með hausnum. Valsstelpur náðu nú samt að setja inn eitt eftir mistök í vörnini.
Ef stelpurnar hefðu byrjað að spila þennan leik eins og þær luku honum hefðu úrslitin orðið allt önnur.
Keflavík - Valur: 2-3 (Helena Rós Þórólfsdóttir, Karen Sævarsdóttir)
Elís Kristjánsson,
þjálfari