Æfingar 8. flokks, árgangar 2000 og 2001
Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2000 og 2001.
Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Boltaæfingar, leikir og hreyfiþroskaæfingar verða í fyrirrúmi. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar.
Æfingatími: Þriðjudagar
- Hópur 1: kl. 17:30 - 18:15
- Hópur 2: kl. 18:15 - 19:00
Æfingastaður: Íþróttahúsið Sunnubraut (A-salur).
Æfingatímabil: Fyrsta æfing 4. okt., síðasta æfing 13. des.
Innritun: Föstudaginn 30. sept. kl. 12:00 - 13:30 og mánudaginn 3. okt. kl. 12:00 - 13:30. Innritun fer fram á skrifstofu Íþrótta- og ungmennafélagsins Keflavík við Hringbraut. Einnig er hægt að senda inn skráningar á neðangreint netfang. Athugið að þátttakendafjöldi í hópana er takmarkaður.
Gjald: 3000 kr. Allir þátttakendur fá gjöf í lok námskeiðsins.
Þjálfari: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttakennari/íþróttafræðingur.
Sími: 899-7158, Netfang: gmjonsson@simnet.is
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!