Æfingar að hefjast hjá 8. flokki
Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný, á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 1999 og 2000.
Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Boltaæfingar, leikir og hreyfiþroskaæfingar verða í fyrirrúmi. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar.
Æfingatími: Þriðjudagar.
Hópur 1: kl. 17:30 - 18:15.
Hópur 2: kl. 18:15 – 19:00.
Æfingastaður: Íþróttahúsið Sunnubraut (A-salur).
Æfingatímabil: Fyrsta æfing 5. okt, síðasta æfing 14. des.
Innritun: Mánudaginn 4. okt. kl. 18:00 - 19:00 og þriðjudaginn 5. okt. kl. 11:30 - 13:00. Innritun fer fram á skrifstofu Íþrótta- og ungmennafélagsins Keflavík við Hringbraut. Athugið að þátttakendafjöldi í hópana er takmarkaður.
Gjald: 3000 kr. Allir þátttakendur fá glaðning í lok námskeiðisins.
Þjálfari: Gunnar Magnús Jónsson, íþróttakennari/íþróttafræðingur
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!
Með kærri kveðju og von um að sjá sem flesta.
Allar nánari upplýsingar veitir
Gunnar Magnús Jónsson, s: 899-7158
Netfang: gunj@ismennt.is