Æfingar að hefjast hjá 8. flokki
Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný, á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2000 og 2001.
Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Boltaæfingar, leikir og hreyfiþroskaæfingar verða í fyrirrúmi. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar.
Æfingatími: Þriðjudagar
- Hópur 1: kl. 17:30 - 18:15
- Hópur 2: kl. 18:15 – 19:00
Æfingastaður: Íþróttahúsið Sunnubraut (A-salur).
Æfingatímabil: Fyrsta æfing 31. janúar, síðasta æfing 25. apríl (engar æfingar verða í kringum páskana, 11. og 18. apríl).
Innritun: Föstudaginn 27. janúar kl. 12:00 – 13:30.
Innritun fer fram á skrifstofu Íþrótta- og ungmennafélagsins Keflavík við Hringbraut.
Einnig er hægt að senda inn skráningar á neðangreint netfang.
Athugið að þátttakendafjöldi í hópana er takmarkaður.
Gjald: 3000 kr. Allir þátttakendur fá gjöf í lok námskeiðisins.
Þjálfari: Gunnar Magnús Jónsson íþróttakennari/íþróttafræðingur.
S: 899-7158, Netfang: gmjonsson@simnet.is