Fréttir

Knattspyrna | 27. janúar 2007

Æfingar að hefjast hjá 8. flokki

Nú eru knatttspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný, á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur.  Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2001 og 2002.  Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni.  Boltaæfingar, leikir og hreyfiþroskaæfingar verða í fyrirrúmi.  Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar. 

Æfingatími:  Þriðjudagar í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
- Hópur 1: kl. 17:30 - 18:15 
- Hópur 2: kl. 18:15 - 19:00
Æfingatímabil: Fyrsta æfing 30. jan, síðasta æfing 24. apríl.
     (Frí í kringum páskana á tveimur æfingum).
Innritun: Skráning sendist á netfangið gmjonsson@simnet.is eða í síma 899-7158, eigi síðar en mánudaginn 29. janúar. 
Athugið að þátttakendafjöldi í hópana er takmarkaður.
Gjald:  4000 kr. Allir þátttakendur fá gjöf í lok námskeiðisins.

Þjálfari: Gunnar Magnús Jónsson íþróttakennari/íþróttafræðingur.