Fréttir

Knattspyrna | 28. september 2006

Æfingar hjá 8. flokki að hefjast

Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný á vegum knattspyrnudeildar Keflavíkur.  Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2001 og 2002.  Á æfingunum verður lögð áhersla á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni.  Boltaæfingar, leikir og hreyfiþroskaæfingar verða í fyrirrúmi.  Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar. 

Æfingatími:  Þriðjudagar í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
- Hópur 1: kl. 17:30 - 18:15
- Hópur 2: kl. 18:15 - 19:00
Æfingatímabil:  Fyrsta æfing 3. okt,  síðasta æfing 12. des.       
Innritun:  Skráning sendist á netfangið gmjonsson@simnet.is eða í síma 899-7158, eigi síðar en mánudaginn 2. okt. 
Athugið að þátttakendafjöldi í hópana er takmarkaður.
Gjald:  4000 kr. Allir þátttakendur fá gjöf í lok námskeiðisins.

Þjálfari:  Gunnar Magnús Jónsson, íþróttakennari/íþróttafræðingur.

ÁFRAM KEFLAVÍK !!!