Æfingatafla sumarsins
Æfingatafla sumarsins fyrir yngri flokka Keflavíkur er kominn hér á síðuna en hún tekur gildi mánudaginn 10. júní. Hér má sjá æfingatöfluna. Allar æfingar fara fram á nýja æfingasvæðinu fyrir ofan Reykjaneshöllina og við viljum hvetja þá sem koma gangandi eða hjólandi á æfingar að nota undirgöngin undir Flugvallarveginn. Í sumar verður boðið upp á hlaupaæfingar fyrir hádegi á föstudögum.