Æfingatafla vetrarins komin
Það er rétt að benda á að æfingatafla vetrarins er komin á vefinn.
Yngri flokkar Keflavíkur í knattspyrnu eru í frí 1.-21. september. Æfingar hefjast svo á ný samkvæmt æfingatöflu vetrarins 2014-2015 mánudaginn 22. september.
Skráningum þarf að vera lokið ekki síðar en 15. október 2014 en skráningin fer fram í Nóra. Athugið að skrá þarf alla iðkendur, nýja og gamla. Hér eru leiðbeiningar um skráningu.
Æfingagjöldin verða óbreytt frá fyrra ári eða 56.000 kr. fyrir tímabilið en 7. flokkur (árgangar 2007-2008) greiðir hálft gjald, 28.000 kr.