Fréttir

Æfingataflan og nýtt æfingasvæði
Knattspyrna | 31. maí 2012

Æfingataflan og nýtt æfingasvæði

Ný æfingatafla yngri flokka tekur gildi 11. júní og þá hefjast æfingar á nýju æfingasvæði Keflavíkur.  Æfingar verða þá á nýja svæðinu sem er fyrir aftan Reykjaneshöllina.  Þangað er keyrt frá hringtorginu en gangandi er bent á undirgöng undir Flugvallarveginn.  Æfingar 8. flokks verða á Iðavöllum.  Hér er æfingatafla sumarsins sem er aðgengileg undir Flokkar - Yngri flokkar hér á síðunni.