Af æfingaleikjum
Meistaraflokkur karla er nú kominn á fulla ferð eftir stutt jólafrí og byrjaði með æfingaleikjum gegn nágrönnum okkar. Síðastliðinn laugardag lékum við gegn Reyni Sandgerði og lyktaði leiknum með jafntefli 3-3. Eitthvað voru okkar menn ekki vaknaðir í byrjun leiks því eftir 10 mínútna leik var staðan 2-0 fyrir Reyni. Okkur tókst þó að jafna leikinn áður en leiktíminn var úti. Bessi skoraði eitt mark í leiknum í leiknum og Hörður tvö. Í gær, mánudag, lékum við gegn Víði úr Garði. Eitthvað var hugarfar okkar leikmanna breytt frá því á laugardaginn. Öruggur 6-0 sigur var staðreynd, mörkin skoruðu þeir Hörður 3, Jói B. 2 og Magnús Þór með eitt af dýrari gerðinni, 30 metrar í samskeytin. Allir leikfærir leikmenn Keflavíkur sem æfa með meistarflokki tóku þátt í leikjunum. Næsti æfingaleikur er gegn Stjörnunni í Kórnum í Kópavogi á laugardaginn kl. 12:00.
Hörður er á skotskónum þessa dagana.