Af lokahófi meistaraflokks
Lokahóf Knattspyrnudeildar var haldið á dögunum á veitingastaðnum Ránni. Leikmönnum voru veittar viðurkenningar fyrir sumarið og þeim sem hafa starfað fyrir deildina í sumar á ýmsum vettvangi var þakkað fyrir sitt framlag. Þá fékk knattspyrnudeildin kærkomið tækifæri til að þakka stuðningsaðilum sínum fyrir stuðninginn í sumar og undanfarin ár. Hófið var vel sótt og var glæsilegt að venju. Gestir borðuðu ljúffengan mat og Helga Braga skemmti og fór á kostum.
Á lokahófinu voru tveir leikmenn kvaddir; Georg Birgisson sem lauk ferli sínum með Keflavík í vor og Ómar Jóhannsson sem er að flytja til útlanda og verður því ekki með liðinu næsta sumar. Þá var Ragnar Steinarsson aðstoðarþjálfari einnig kvaddur en hann er að flytja til Danmerkur. Sævar Pétursson fékk gjöf frá deildinni en hann er nýgenginn úr stjórn.
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að veita leikmönnum viðurkenningu fyrir leikjafjölda; bronsmerki fyrir 50 deildarleiki, silfurmerki fyrir 100 leiki og gullmerki fyrir 150 leiki í 1. deild og úrvalsdeild. Að þessu sinni fengu fjórir leikmenn bronsmerki; Hólmar Örn Rúnarsson (53 leikir), Magnús Þorsteinsson (65 leikir), Kristján Jóhannsson (78 leikir) og Zoran Ljubicic (85 leikir). Þórarinn Kristjánsson fékk bronsmerki en einnig silfurmerki en hann hefur nú leikið 107 deildarleiki fyrir Keflavík og er leikjahæsti leikmaður liðsins aðeins 22 ára gamall.
Þórarinn fékk einnig gullskóinn sem markahæsti leikmaður meistaraflokks en hann skoraði 14 mörk í 1. deild í sumar. Magnús Þorsteinsson fékk silfurskóinn fyrir 12 mörk en hann fékk einnig verðlaun fyrir besta markið sem kom gegn Breiðablik á Keflavíkurvelli í júlí.
Hápunktur kvöldsins var að sjálfsögðu krýning leikmanns ársins. Hjá 2. flokki var Ingvi Rafn Guðmundsson valinn besti leikmaðurinn, Árni Þór Árnason var efnilegastur og Ögmundur Erlendsson var valinn besti félaginn. Í meistaraflokki var Jónas Guðni Sævarsson valinn efnilegasti leikmaðurinn og fyrirliðinn Zoran Ljubicic besti félagsmaðurinn. Að lokum var svo Þórarinn Kristjánsson valinn leikmaður ársins hjá Keflavík og fór því heim hlaðinn verðlaunum og viðurkenningum.