Áfangar og Knattspyrnudeild í samstarf
Knattspyrnudeild og Áfangar ehf. hreinlætisvörur hafa undirritað samstarfssamning og er samningurinn til tveggja ára. Fyrirtækið verslar með hreinlætisvörur eins og nafnið gefur til kynna og er í eiga Smárs Helgasonar og fjölskyldu hans en Smári er einnig formaður Barna- og unglingaráðs Knattspyrnudeildar Keflavíkur. Deildin hefur átt gott samstarf við Áfanga undanfarin ár og einnig hefur fyrirtækið stutt unglingastarfið og m.a. útvegað salernispappír og fleira til endursölu við fjáraflanir. Áfangar ehf. hafa aðsetur að Hafnargötu 90.