Fréttir

Knattspyrna | 22. janúar 2009

Afmælisbarn dagsins...

Afmælisbarn dagsins er Magnús Þórir Matthíasson sem er einn af okkar ungu og efnilegu leikmönnum.  Magnús er 19 ára í dag, 22. janúar.  Hann hefur verið í leikmannahópi meistaraflokks síðustu tvö sumur og á að baki tvo leiki í efstu deild.  Við sendum drengnum hamingjuóskir í tilefni dagsins og hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama.