Fréttir

Knattspyrna | 20. júlí 2009

Afmælisbarnið Falur

Falur Daðason, hinn öflugi sjúkraþjálfari Keflavíkurliðsins, hélt upp á afmæli sitt á laugardaginn var.  Pilturinn varð þá 35 ár gamall og hélt upp á afmælið á Kaplakrikavelli þar sem hann var með Keflavíkurliðinu að gera jafntefli við Íslandsmeistara FH.  Falur hefur verið sjúkraþjálfari karlaliðs Keflavíkur undanfarin ár og staðið sig með eindæmum vel enda fagmaður fram í fingurgómana og hvers manns hugljúfi.  Við sendum afmælisbarninu síðbúnar afmæliskveðjur og vonum að hann og fjölskylda hans hafi notið dagsins. 

Hér fylgja svo nokkrar myndir úr safni Jón Örvars en á annarri myndinni er Falur einmitt kominn í sína uppáhaldsstöðu: að pynta einn leikmann Keflavíkurliðsins.