Afmæliskveðja til Bjögga
Okkar ágæti félagi Björgvin Björgvinsson er 35 ára í dag, 6. mars, og við sendum honum okkar bestu kveðju í tilefni dagsins.
Bjöggi gekk til liðs við Keflavík ásamt Willum Þór félaga sínum árið 2009. Hann varð strax hluti af okkar ágæta liði og á nú að baki 58 leiki með liðsstjórn Keflavíkur! Það þekkja hann nánast allir í fótboltanum hér heima og hvar sem hann kemur er honum vel tekið. Það er óhætt að segja að hann sé vinur vina sinna og vina þeirra líka.
Knattspyrnudeild sendir Bjögga hjartanlegar hamingjuóskir á afmælisdaginn.