Fréttir

Áframhaldandi samstarf við Landsbankann
Knattspyrna | 7. desember 2012

Áframhaldandi samstarf við Landsbankann

Knattspyrnudeildin hélt í gær árlega jólahátíð sína þar sem styrktaraðilum er boðið til hangikjötsveislu.  Þjálfarar meistaraflokka, Zoran Ljubicic og Gunnar Oddsson hjá karlaliðinu og Snorri Már Jónsson þjálfari meistaraflokks kvenna, fóru yfir stöðu mála og ræddu næstu skref.  Viðir Sigurðsson kynnti bók sína Íslenska knattspyrnu en fyrstu eintökin af bókinni um árið 2012 komu einmitt úr prentun í gær.

Knattspyrnudeild Keflavíkur og Landsbankinn skrifuðu við þetta tækifæri undir nýjan tveggja ára samstarfssamnig en það voru þeir Þorsteinn Magnússon formaður deildarinnar og Einar Hannesson útibússtjóri sem skrifuðu undir samninginn.  Báðir lýstu þeir yfir mikilli ánægju með samninginn og samstarfið.  Einar hrósaði einnig Knattspyrnudeild fyrir mikið og gott aðhald í peningamálum og lýsti jafnframt ánægju sinni með þá stefnu félagsins að leyfa ungum leikmönnum að spreyta sig.

Myndina með fréttinni tók Hilmar Bragi Bárðarson.