Áframhaldandi samstarf við Norðurál
Miðvikudaginn 28. april skrifuðu Knattspyrnudeild Keflavíkur og Norðurál Helguvík undir samning um áframhaldandi samstarf. Norðurál hefur verið deildinni afar mikilvægur samstarfsaðli og samningurinn gerir Norðurál að einum af mikilvægustu styrktaraðilum Knattspyrnudeildarinnar. Mikil ánægja er innan deildarinnar með samninginn og mun merki Norðuráls sjást víða hjá Keflavik í sumar. Á meðfylgjandi myndum má sjá Þorstein Magnússon formann Knattspyrnudeildarinnar og Skúla Þ. Skúlason framkvæmdastjóra starfsmannasviðs Norðuráls Helguvík undirrita samninginn.