Aftur frestun hjá stelpunum
Leik KR og Keflavíkur í 1. deild kvenna hefur verið frestað en leikurinn átti að fara fram á KR-vellinum í kvöld, föstudag. Þess í stað verður leikurinn þriðjudaginn 6. ágúst. Það hefur gengið illa hjá stelpunum okkar að ná að klára einhverja leiki en leiknum gegn Grindavík var frestað á dögunum en hann verður miðvikudaginn 6. júní.
Næsti leikur Keflavíkur er gegn Sindra á Nettó-vellinum laugardaginn 22. júní kl. 14:00. Og svo er bara að sjá hvernig það gengur...