Ágæt byrjun hjá 2. flokki
Lið Keflavíkur/Njarðvíkur hefur farið ágætlega af stað í Íslandsmóti 2. flokks. Strákarnir leika þar í B-deild og eru með níu stig eftir fjóra leiki. Á miðvikudag fengu þeir lið Leiknis/KB í heimsókn og var leikið í Njarðvík. Okkar menn unnu 5-2 þar sem Ari Steinn Guðmundsson skoraði tvö mörk og Fannar Orri Sævarsson, Arnór Smári Friðriksson og Leonard Sigurðsson eitt mark hver. Næsti leikur liðsins verður bikarleikur gegn Haukum en hann fer fram í Hafnarfirði miðvikudaginn 11. júní.
Mynd: Ari Steinn var á markaskónum.