Áhorfendafjöldi í sumar
KSÍ hefur birt tölur um áhorfendafjölda á leikjum Landsbankadeildarinnar í sumar, nú þegar aðeins einni umferð er ólokið. Keflavík fékk að meðaltali 830 áhorfendur á heimaleiki sumarsins eða 7.474 manns á heimaleikina 9 í sumar. Alls hafa 7.025 séð okkar menn leika á útivelli eða 878 á leik. Liðið á einn útileik eftir, gegn Fram á sunnudaginn og má búast við mikilli aðsókn á leikinn sem getur ráðið úrslitum um framtíð Framliðsins í efstu deild.
Meðalaðsókn á leikina í Landsbankadeildinni er 1.017 á leik. Flestir koma á heimaleiki KR, eða 1.591 á hvern leik, en næstir koma FH-ingar með 1.574. Keflavík er í 7. sæti varðandi aðsókn á heimaleiki en Víkingar eru þar rétt fyrir ofan og munar aðeins sex manns.
Fjöldi á einstaka heimaleiki Keflavíkur í sumar var eftirfarandi:
|
|