Álftanes - Keflavík á föstudag kl. 20:30
Föstudaginn 24. apríl er komið að leik Álftaness og Keflavíkur í Lengjubikar kvenna. Leikurinn verður á Samsung-vellinum í Garðabæ og flautað verður til leiks með seinni skipunum eða kl. 20:30. Dómari verður Hjalti Þór Halldórsson.
Okkar liði hefur gengið ágætlega í keppninni en þetta er síðasti leikur liðsins í riðlinum. Stelpurnar eru með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina, hafa sigrað Sindra og Fram en tapað naumlega fyrir toppliði HK/Víkings. Álftanes er með þrjú stig eftir tvo leiki.