Fréttir

Knattspyrna | 25. ágúst 2005

Allt til reiðu gegn Mainz

Það hefur varla farið framhjá neinum að Keflavík og Mainz 05 leika seinni leik sinn í 2. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða í kvöld.  Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefst kl. 19:15.  Mainz er með 2-0 forskot eftir fyrri leikinn.  Dómarar leiksins koma frá Frakklandi; dómarinn heitir Bruno Derrien, aðstoðardómarar hans eru Patrick Reinbold og Christoph Capelli en fjórði dómarinn heitir Bruno Ruffray.

Það er ljóst að stuðningsmenn Keflavíkur ætla að fjölmenna á völlinn og þó nokkur hópur stuðningsmanna Mainz mun einnig mæta.  Mikil eftirvænting er eftir þessum leik og forsala aðgöngumiða hefur gengið vel.  Svo mikið var spurt um miða á leikinn á höfuðborgarsvæðinu að ákveðið var að setja einnig miða í forsölu í Reykjavík.  Þjóðverjarnir reikna með hörkuleik en af einhverjum ástæðum hafa þeir haft miklar áhyggjur að veðrinu, bæði í fluginu og á leiknum!

Ekki er enn búið að velja 18 manna hópinn sem leikur í kvöld en þessir koma til greina í hópinn:

Ómar Jóhannsson
Magnús Þormar
Guðjón Antoníusson
Michael Johansson
Baldur Sigurðsson
Guðmundur Mete
Gestur Gylfason
Issa Abdulkadir
Bjarni Sæmundsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Jónas Guðni Sævarsson
Kenneth Gustavsson
Branko Milicevic
Atli Rúnar Hólmbergsson
Gunnar Hilmar Kristinsson
Símun Samuelsen
Stefán Örn Arnarson
Guðmundur Steinarsson
Hörður Sveinsson