Fréttir

Amber og Lauren semja við Keflavík
Knattspyrna | 5. apríl 2017

Amber og Lauren semja við Keflavík

Knattspyrnudeildin hefur samið við tvo leikmenn sem munu spila með meistaraflokki kvenna í sumar en það eru þær Amber Pennybaker og Lauren Watson.  Amber spilaði 20 leiki í deild, bikar og úrslitum með Keflavík á síðasta ári og skoraði í þeim sjö mörk. Lauren sem er markmaður kemur frá Woodlands í Texas en þar spilað hún með Woodlands High School og síðan með Texas Tech University. Keflavík bindur miklar vonir við þær stöllur í baráttunni við að komast upp í Pepsi-deildina á næsta ári og býður þær velkomnar í hópinn.

Jón Ben formaður og Lauren Watson.

Jón og Amber Pennybaker.