Fréttir

Andri Fannar í Keflavík
Knattspyrna | 28. janúar 2013

Andri Fannar í Keflavík

Andri Fannar Freysson er genginn í raðir Keflavíkur og hefur gert tveggja ára samning við félagið.

Andri Fannar er fæddur árið 1992 og er því tvítugur.  Hann kemur frá Njarðvík þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.  Andri Fannar á að baki 44 leiki með Njarðvíkingum í deild og bikar og hefur skorað í þeim 22 mörk.  Þá hefur hann leikið með U-17 ára landsliðinu.  Ekki má gleyma að faðir Andra, Freyr Sverrisson, lék á sínum tíma rúmlega 100 leiki með Keflavík á árunum 1981-1990.

Við bjóðum Andra Fannar velkominn í Keflavík.