Anita Lind með U-17 ára
Anita Lind Daníelsdóttir er á leið á Opna Norðurlandamótið með U-17 ára landsliði kvenna. Mótið fer fram í Kolding í Danmörku 28. júní - 5. júlí. Þessa dagana fer fram Evrópumót U-17 ára liða hér á landi og því fer yngri hópur á Norðurlandamótið og er Anita Lind í 18 leikmanna hópi sem Úlfar Hinriksson hefur valið til þátttöku þar.
Anita Lind er fædd árið 1999 og verður 16 ára í sumar. Hún leikur með RKV í 3. flokki kvenna og á þegar nokkra leiki að baki með meistaraflokki. Anita Lind hefur leikið tvo leiki með U-17 ára landsliðinu en hún var með liðinu á UEFA-móti sem fór fram í Færeyjum í apríl.
Við óskum Anitu Lind og liðsfélögum hennar góðs gengis.