Anita Lind með U-17 ára til Serbíu
Anita Lind Daníelsdóttir er í U-17 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í milliriðli Evrópumóts U17 kvenna sem fer fram í Serbíu dagana 22.-30. mars. Anita Lind er í 18 leikmanna hópi sem Freyr Alexandersson hefur valið til þátttöku þar. Ísland tryggði sér sæti í milliriðlinum í undanriðli sem leikinn var í Svartfjallalandi fyrr í vetur.
Anita Lind er fædd árið 1999 og er 17 ára. Hún á þegar nokkra mótsleiki að baki með meistaraflokki og hefur verið fastamaður í liðinu í undanförnum leikjum. Anita Lind hefur leikið 10 leiki með U-17 ára landsliðinu og skorað í þeim þrjú mörk.
Við óskum Anitu Lind og liðsfélögum hennar góðs gengis.